1 3

TEMPS DANSE GALANTE LOOSE TANK TOP - NOIR

TEMPS DANSE GALANTE LOOSE TANK TOP - NOIR

4.990 ISK
4.990 ISK
Uppselt
Stærð

Galante Loose Tank Top er ermalaus æfingabolur með mjóum hlýrum sem þó eru hannaðir til að fela brjóstahaldara. Sniðið er lauslegt og heimilar frjálsa hreyfingu notandans, en rufflur umhverfis ermagötin gefa flíkinni ásýnd mótunar og fínleika. Þræðir eru úr náttúrulegum efnum og bolurinn því afar mjúkur.

Nánar um vöruna:

  • Efnið býr yfir rakadrægni og heldur þannig líkamslykt í lágmarki.
  • Teygjanlegt efni sem endist og liturinn heldur sér í gegnum tímans rás. Ath. að allar vörur Temps Danse eru lausar við asóbensen-litarefni.
  • Flíkin er saumuð úr Livaeco-trefjum, vistvænni tegund af viskósi, sem styður við varðveislu vatnsbóla og skógarsvæða. Efnið er með FSC®-umhverfisvottun, brotnar niður lífrænt á stuttum tíma og dregur úr kolefnislosun.

 

Temps Danse er franskt vörumerki sem sérhæfir sig í fatnaði fyrir dansara og jógaiðkendur á mismunandi stigum. Fyrirtækið leggur ríka áherslau á gæðastaðla, bæði þegar kemur að efni og hönnun. Að auki hefur Temps Danse sett sér umhverfismarkmið við framleiðslu og hönnum, sem meðal annars er náð með því að nota efni úr plöntum og endurunnin klæði frá meginlandi Evrópu.